Jæja gott fólk... Þá er ég komin
heim frá Amsterdam og hef sko FULLT að segja ykkur
:Þ

Það var nebbla þannig að ég náði í Binna á
Stokkseyri 30 júl vegna þess að við vorum að fara á
fimtiudagsmorgun sem var daginn eftir. Oooog allt i góðu með það.
Binni kemur hingað og ég fer að halda áfram að hafa mig til og
pakka niður og svona en þá var klukkan orðin um eitt leiðit svo við
horfðum á Rockstar líka og þegar það var búið þá var klukkan 2 um
nótt og við áttum að vakna eftir tvo tíma :0 En svo var ég bara
búin að vera svo stressuð eins og ég er alltaf þegar ég þarf þess
ekki, einkennilegt, allavega, ég gat ekki sofnað og ákvað bara að
vaka og svo tækjum við því bara eitthvað rolega þegar við kæmum
þangað.. En ég et ekki að fara að skrifa æfisögu þannig að ég ætla
að reina að hafa þetta sem stissst.
Komum til Amsterdam um tólf á
hádegi og við ákváðum bara að taka taxa uppá hótel sem er eitt
fínasta hótel í Hollandi og heitir Hotel Schipol Vander Valk. En
þetta hótel var samt eiginlega í mjög leiðinlegri fjarðlægð frá
Amsterdam sjálfri en sem betur fer buðu þeir upp á fría shuttle
servis sem við Binni misnotuðum eins og kleinuhring..
Allavega við förum að skoða og
þetta er GEGGJUÐ borg skal eg segja ykkur! Fyrsta búðin sem við
förum inní er troðfull af glerskápum og í þeim voru bara lón og
pípur eins og langt og augað á mér náði og svo hinar og þessar
tegundir af jónupappír með ýmsum bragðefnum... Eins og gefur að
skilja þá vorum við Binni frekar svona... jah... ekki “það” vitlaus
að láta þessa borg plata okkur svona þannig að við voguðum okkur
ekki fyrir okkar litla líf að kaupa neitt þarna inni...
Svo löbbuðum við bara aðeins
lengar og það sem við komumst að er Himnaríki hasshausins! Búðir
sem heita Munchies, Marley´s CaffeShop og annað eins alveg út
götuna eins langt og borgin náði!við fórum aðeins þarna inn á eitt
“kaffi hús” og ætluðum bara að stoppa stutt en nei það gekk sko
ekki eftir og ég er ekki frá því að ég hafi bara verið hálf ónýt
sjálf af lyktinni þarna inni og þá er ég ekki að tala um
reykingarlykt! Ég er að tala um það að gaurinn er bara með dalla
sem hann merkir með hverri og einni einustu tegund af Canabis sem
Hann sjálfur ræktar og þetta er bara svo geggjuð stemning að mér
fynst það bara ekki allt í lagi!
Nú okkur lá auðvitað ekkert á að fara neitt því við
ætluðum auðvitað að vera þara í átta daga og bara aðeins að tjilla
þarna þetta kvöld allavega...
Svo við fórum nú bara upp á
hótel og héldum feiknar veislu fyrir tvo í lúxus svítu með baði,
sturtu (og auðvitað klósti) GEGGJUÐU rúmmi og yndislegum svölum sem
láu beint út í garðinn sem ég ætla bara ekki að eiða lífstíðinni í
að lýsa því hann var svo fallegur. En já við vorum þarna semsagt í
4 daga á þessu hóteli.

Ekki er allt eins gott og það
á að vera þegar ég ákveð það!
Fórum í sakleysi okkar á klúbb
þarna í Amsterdam Central og þar labbar upp að okkur ástralskur
strákur sem segist vera eining af hóp sem labbi um alla amsterdam
og leiti að ungum túristum sem eru að leita eftir fríu áfengi og að
kynnast öðru fólki..Svo við létum slag standa og fórum þarna á
föstudaginn (síðasta) og skemmtum okkur konunglega þangað til að ég
uppgvöta að það er búið að ræna veskinu mínu URRRRR
Og það er ekki hægt að segja að það hafi verið lítið mál að redda
því vegna þess að þetta var það eina sem við vorum með og allir
peningarnir á því korti !
En við erum
ágætis úræðagóð og ég hringi bara í Visa á Íslandi því mig minti að
það hafi verið eithver ferða trygging á kortinu mínu og svo var
líka J það
eina sem ég þurfti að gera var að segja eim hversu mikinn pening
við þurftum þangað til að við kæmum heim og ég sagði bara 350 euro.
Á meðan að á þessu stóð þá er Binni að tala við íslenska sendiráðið
í Amsterdam og fær lánað þar 200 euro og þá vorum við sátt NEMA
HVAÐ! Haldiði ekki að helvítis hótelið hafi ekki bara sparkað okkur
út á þeirri sekondu sem þeir vissu að ég hafi verið rænd og henda
okkur á götuna með þessi orð: you don´t pay, you don´t
stay...

Og svona ykkur að segja þá
missti ég kjálkann niður fyrir brjóst því annan eins dónaskap hef
ég aldrei á æfi minni fengið slegið í andlitið eins og blauta
tusku.. svo hvað áttum við að gera? Það er 9ooo manna ráðstefna í
Amsterdam og hvert einasta helvítis hótel er full... en ég tek upp
á því að fara bara á annað hótel og athuga hvort þau eigi ekki eitt
tveggjamanna herb, í eina nótt laust og viti menn
það leit út
fyrir að þetta væri að blessast...Svo gistum við á þessu yndislega
hóteli með þessu yndislega starfsfólki og þetta kvöld var sko
djammað! Því við áttuðum okkur á því að hótelið sem við vorum í var
akkurat við hliðið inn í Redlight District!!!
BTW.. Binni fékk sér tattoo og hélt hann
ætlaði að grenja!

Ó DROTTIN var gaman!
En ég nenni eiginlega ekki að
fara í restina nema í grófum dráttum...
Peningalaus, matarlaus,
peningarlaus, lestarlaus, svöng, þreitt og heitt... heim kl
14oo...
Dett á andlitið í tröppu og
bít úr kinninni alveg huge bita og sprengi eftirvör og neðrivör og
er ÖLL bólgin!
Jæja ég tók allavega þá
ákvörðun að andskotast með vélinni í dag (“mistum” af henni í
gærS) en áttum ekki fyrir lest svo við þurftum að betla
og á endanum komumst við...
Ég sef alla
leiðina nema svona rétt til að athuga ógeðist meter-inn á matnum í
þetta skiptið og svo sofna ég aftur. Vakna og við beint í gegn þar
sem ég get bara ekki beðið ettir að knúsa kallinn og fá sígó... En
nei takk fyrir og ekki koma aftur! Ég var stoppuð í tollinum! (með
mikinn farangur en ekkert sem vert var að leita að) sem tók
ógeðistíma að fara í gegnum btw... loks þegar ég held að þessari
óheppni sé að ljúka þá kemur kellan frá tollinum inn og segir mér
að löggan vilji eiga við mig orð.. og ég bara oooook og svo koma
þarna tveir eldri menn sem kinna sig og ástæðu sína fyrir því að
vera að bögga mig og nei takk og sjervolett! Þá ætlast þeir til
þess að ég skíti einhverjum 3o.ooo kalli til að borga sekt eða þeir
fari með mig á mini litla hraun þarna niðrá grettisgötu eða hvar
sem það er og ætlast til að ég sitji
inni!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!



Sem betur fer þá fékk ég
péninga og gat borgað þeim og er núna upp í sófa bara áhyggjulaus
að fara að sofa og svo í réttir á morgun 
Nice to share this

PerlaD out!